Hæna í fóstur !

Líf

BYRJUN NÝS LÍFS.

Vilt þú taka í “fóstur” LANDNÁMSHÆNU ?

Afhverju ekki,alls ekki svo galin hugmynd !

Um leið og þú gerir það þá eignast þú fallegan og skemmtiegan fugl.
Fugl sem var í útrýmingarhættu og fæst hvergi annarsstaðar en hér á landi. Þú styður við verndun á þessum fugli og sérð til að hann hverfi okkur ekki. Og um leið styrkir þú og styður við einn af okkar gamla menningararfi sem við eigum. En einn af okkar menningararfi er einmitt húsdýrin okkar og okkur ber að varðveita hann og vernda.
Skoðaðu heimasíðuna mina og kynnstu fuglinum,taktu einn eða fleiri í fóstur og styddu við ræktun og björgun á íslensku Landnámshænunni.
Slóðin á síðuna er www.islenskarhaenur.is og www.landnamshaenan.is þar er að finna allt það helsta sem snýr að fuglinum.
Vegna fyrirspurna frá mörgum aðilum hef ég ákveðið að bjóða fólki sem langar til að “eiga” íslenska Landnámshænu en hefur ekki tök á að hafa hænuna hjá sér vegna aðstæðna,getu eða einhvers annars að taka hænu í “fóstur” hjá mér.
Hænu sem  þú  “átt” hjá mér og færð eggin úr. Þú borgar hænuna sjálfa og fóðrið hennar í tvö ár  og  ég hugsa um hana,el hana upp fyrir þig og þú færð arðinn úr henni í 11 mánuði  á ári sem gerir allt að 220 egg á ári  til þín eða um 20 egg á mánuði eða 1 kg.af eggjum. Hænan skiptir um fiður í ágúst/ September og fellur þá varp niður um tíma.Þess vegna skilar hún eggjum í um ca.11 mánuði en ekki 12 á hverju ári.
Þú átt alltaf til vistvæn og fersk egg fyrir þig og þína og þú getur hvort sem er notað þau til heimilisins eða gefið þau til vina og vandamanna í skemmtilegar tækifærisgjafir nú eða bara selt þau.
Eggin færðu send mánaðarlega eða eftir samkomulagi við mig og þau verða alltaf ný og fersk.
Þú getur líka afþakkað að fá eggin ef þú vilt,það er engin skilda að taka þau og tekur þá hænu án arðs í fóstur en ert auðvitað samt sem áður að bjarga menningar arfi, styðja við ræktunina og forða Landnámshænunni frá því að hverfa okkur. Svo markmiðið er og verður það sama og tilgangurinn sá sami. Þú getur líka tekið hluta af eggjunum. Það verður þá bara samkomulagsatriði okkar á milli.
Hænunni sem þú tekur í fóstur gefur þú sitt eigið nafn,hún verður merkt þér  og heldur sínu nafni alla tíð. Þú mátt koma allt að 3 sinnum á ári til að skoða þína hænu eða eftir nánara samkomulagi og við finnum út hvenær þér hentar að koma við. Með heimsóknir er allt opið .
Þú mátt halda á henni og verja tíma með henni,skoða hvernig hún býr og sérð hvernig hún hefur það.
Þú velur þér unga hænu annað hvort hér á staðnum eða eftir myndum sem ég sendi þér og þú færð fréttir af henni á 3ja mánaða fresti og þú færð líka jólakort frá henni og nýja mynd með kortinu. Þér er líka alltaf velkomið að hringja eða senda tölvupóst ef  það er eitthvað sem þú vilt vita.
Þér verður boðið uppá kaffi og heimabakað og skemmtilegt spjall í leiðinni….ef þú kemur hingað og velur hænuna sjálfu/r.
Er ekki líka alltaf gaman að kíkja í sveitina svona við og við?
Hér fyrir neðan sérðu hvað þú ert að borga fyrir svo ekkert fari á milli mála og eins kemur það fram í skilmálum í samningnum sem gerður verður okkar á milli ef þú fóstrar Landnámshænu.
Hænan kostar 5000 kr enda velur þú hænu sem er orðin 20 vikna gömul og ég er búinn að ala upp fyrir þig frá upphafi..20 vikna gömul er hún líka að hefja sitt varp svo þú færð arðinn svo að segja strax.
Fóður þarf hún og hún þarf um 120 gr.á dag sem gerir um 44 kg á ári.
Kílóið kostar í dag 128 krónur sem gerir þá  5.633 kr á ári og hænan verpir vel í tæplega tvö ár eða nærri eins lengi og fóstur tíminn stendur og þú færð arðinn frá henni.
Það geri því 2 x 5.633 kr sem er 11.266 kr fyrir fóður í tvö ár.
Svo hænan sjálf og fóður í hana í tvö ár gera því  16.266 kr.mismunur á kostnaði og samningverði er því 4.734 kr sem ég nota sem tryggingu ef fóður skildi hækka á samningtímanum,vegna lyfjakaupa og fl.er til fellur.
Fóðurpokinn hefur t.d. hækkað um rúml.3000 kr sl.tvö ár og hækkar enn.
Laun tek ég engin og hugsa um hænuna  sem væri min eigin hæna.
Hún fær afganga úr bænum,gott,bjart og hlýtt húsaskjól,góða umönnun,fersk vatn og gott fóður daglega og fær að vera úti þegar hún vill og eða getur vegna veðurs. Líf hennar breytist sem sagt ekkert,þú bara fóstrar hana og ég hugsa vel um hana.
Eftir að samnings tímanum líkur “átt” þú þessa hænu hjá mér áfram þó þú fáir ekki arð af  henni lengur en hún er búin að borga sig upp til baka á þessum tíma .Og vel það. Þú færð því áfram fréttir af þinni hænu.
Þú getur endurnýjað samningin ef þú vilt og hefur áhuga og valið þér nýja hænu og “átt” þá tvær Landnámshænur hér hjá mér. Og önnur gefur arð.
Þú færð um 220 egg á ári í nærri tvö ár sem gera  440 egg í allt á  tímanum og 30 eggja bakki af visvænum eggjum kostar í dag 1800 kr.
Svo þú færð á þessum tíma til baka það sem þú borgar í upphafi við að taka Landnámshænu í fóstur.
Og meira en það því þetta gera alls rúml. 14 bakka af eggjum  á tveimur árum eða rúmlega 7 bakka á ári.
Hver bakki kostar 1.800 kr sem gera alls 25.200 kr.fyrir bæði árin.
Mismunurinn er því 4.200 kr sem þú færð í raun til baka af  upphaflega samningverðinu og ert því í raun að borga 800.kr.fyrir hænuna í upphafi en færð allt til baka og meira en það.Þú ert sem sagt í 3.400 kr gróða þegar upp er staðið (21.000 + 4.200 =25.200) Þú fengir ekki þessa upphæð í vexti þó þú ættir hana inni í banka í tvö ár.
Og þetta er verð á eggjum í dag sem getur breyst ef þau hækka eða lækka í verði.
Og þú ert líka og ekki hvað síst að styðja við ræktun og verndun á Landnámshænunni og koma í veg fyrir að hún deyji út.
Sem sagt…..með því að taka hænu í fóstur bjargar þú henni frá útrýmingu,styður við ræktun á henni,heldur í gamlan  menningararf og átt alltaf til nóg af ferskum og vistvænum eggjum.
Ekki svo galin hugmynd eða hvað?

Hafðu samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða áhuga á að taka Landnámshænu í fóstur.

Símar eru 451-2271 og GSM  861-3348

Tölvupóstfang er landnamshaenan@landnamshaenan.is 

 

www.landnamshaenan.is og www.islenskarhaenur.is

Hlakka til að heyra frá þér !

Júlíus Már Baldursson

Ræktandi

Tjörn Vatnsnesi