Að leigja sér Landnámshænu yfir sumarið.

Athugið að stefnt er að því að opna fyrir þennan möguleika í byrjun júní n.k.ef allt gengur eftir.

Þetta hljómar kannski svolítið sérkennilega en samt. Afhverju ekki að leigja hænur?
Margir sumarbústaða eigendur eru orðið mest allt sumarið í bústöðunum, eru með góðar og afgirtar lóðir í kringum þá og eiga eða ætla að fá sér nú eða smíða sjálfir lítil hús á lóðirnar hjá sér. Þessi hús mjög henta vel nokkrar hænur. Enda gaman að hafa nokkrar hænur á vappi á lóðinni,tala við þær,hlúa að þeim,gefa þeim afganga úr bænum og korn og hæna þær að sér.

Ekki skemmir svo fyrir að fá alltaf og hafa ný og fersk  egg á hverjum degi. Bæði heimilislegt og vinalegt.
Mjög margir  sumarbústaða eigendur hafa haft á orði við mig undanfarin misseri að þeim langi til að vera með hænur á lóðinni hjá sér á meðan þeir eru í bústaðnum en vita svo ekki hvað þeir eigi að gera við fuglana þegar hausta tekur og fólk fer að vera minna í  bústöðunum og hefur ekki aðstöðu til að taka þær með heim og hafa þær þar yfir vetrarmánuðina.
Vita  svo ekki hvort þeir geti selt þær aftur um haustið og vilja alls ekki lóga þeim.
Meðal annars hefur verið rætt um að fá lánaðar hænur að vori til eða leigja þær ef hægt væri og skila þeim svo aftur um haustið.


Ti að koma á móts við óskir þessa fólks er stefnt að því að opna á þennan möguleika hér á Tjörn nú í vor ef allt gengur eftir og leigja hænur frá vori fram á haustið.

Leigðu þér hænur yfir sumarið.


Eingöngu yrðu leigðar hænur sem orðnar eru 6 mánaða eða eldri og fuglar sem eru byrjaðir í varpi og verpa vel.
Leigjandi mun þá fá eggin úr fuglunum á meðan á leigutíma stendur  og skilar svo fuglinum aftur um haustið þegar dvöl í bústaðnum hættir að vera stöðug.
Athugað verður hvort aðstaða sé ekki góð  sem og skilyrði fyrir leigu er að fuglarnir verði ekki skildir einir og eftirlitslausir eftir ef fólk fer annað í frí  á meðan á leigutíma stendur.
Þetta er eingöngu gert með velferð fuglanna í huga  en ekki  vegna vantrausts á viðkomandi leigjanda.  
Gerður verður sérstakur samningur á milli eiganda og leigjanda og verður hægt að lesa alla skilmála á viðkomandi samningi sem og leigu verð fyrir hver fugl á mánuði.
Hægt verður að leigja fugl frá því í byrjun júní til október loka  eða eins og hverjum hentar á þessu tímabili sem gefið er upp.
Fjöldi fugla á leigu fer svo eftir hversu stórt húsið er,hvernig aðstaðan er sem og hversu marga fugla hver og einn vill hafa hjá sér yfir sumarið á leigutímanum.
Vonandi verður þetta til þess að margir geti haft hjá sér íslensku Landnámshænuna og kynnst henni betur en ella og séð hversu skemmtilegur karakter hún er sem gælu og nytjadýr.


Ef áhugi er fyrir þessu þá vinsamlegast setjið ykkur í samband við mig á eftirfarandi.


landnamshaenan@landnamshaenan.is eða í símum 451-2271 og 861-3348.

Bestu kveðjur


Júlíus Már Baldurssom                 

Tjörn Vatnsnesi                

531 Hvammstangi

Leigu samningur:
                       

Leigusamningur á Landnámshænu.

Undirritaðir aðilar hafa gert með sér eftirfarandi samning um leigu á

_______    Landnámshænu/m frá Landnámshænsnabúinu  að Tjörn á Vatnsnesi.

 

Samningurinn gildir frá    ___   /   ___    2012  til  ___   /   ___    2012.

 

Leiguverðið er 1500 kr fyrir hvern fugl á mánuði sem tekinn er á leigu og greiðist fyrirfram eða við afhendingu fuglsins/fuglanna.


Leigutaki axlar þá ábyrgð  á meðan á leigutíma stendur að vel  sé búið að fuglinum/fuglunum og að hann/þeir hafi nóg fóður,vatn og öruggt húsaskjól.


Komi eitthvað fyrir fuglinn meðan á leigutíma stendur það er að ef fugl slasast eða veikist svo aflífa verði hann eða hann fellur frá af einhverjum orsökum þá greiðist fuglinn upp eins og hann hafi verið keyptur af eiganda.


Verð fyrir Landnámshænu í varpi er  4.500 kr


Leiguverð dregst ekki frá kaupverði falli fuglinn frá.


Hægt er að bæta við fugli/fuglum á leigutíma sé þess óskað.


Leigutaki hefur arð af fuglinum allan leigutímann.


Leigusali leggur til bæði fóður og vatnsílát yfir leigutímann.


Ílátin skilist í lok leigutímans með fuglinum/fuglunum og skulu vera bæði heil og hrein.


Komi upp sú staða að leigutaki geti ekki af einhverju ástæðum haft fuglana út umsamin leigutíma þá getur hann skilað fuglunum og mun þá mismunur á leigutíma endurgreiðast að fullu.

 

Tjörn  _____ / _____  2012.

 

Leigusali:                                                         Leigutaki:

 

Júlíus Már Baldursson                                      Jón Jónsson
011260-2259                                                     000000-0000

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

Styrktaraðilar